HJÚKKUR 2006

...núna ertu hjá méééér, Nííína...

21.05.2008 10:56:06 / NurseÓli

Jæja gott fólk!!

Hvað á að gera af sér í sumar?? Eitthvað spennó?

Eru einhverjir að fara í nám í haust?

Hvar eru allir að vinna?

Gleðilegt sumar :lol:

kv.Óli

» 24 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 22:27:34 / NurseMaríaBóel

Tilboð í Laser augnaðgerðir

Heil og sæl öllsömul og takk fyrir síðast.

Eins og ég lofaði einhverjum ykkar þá athugaði ég möguleikann á að senda ykkur tilboð í laseraðgerðir og fólkið hjá Sjónlagi var mjög tilbúið að senda ykkur tilboð. Ég þyrfti þó að fá email addressurnar ykkar til að senda ykkur tilboðið sjálft þannig að endilega sendið mér meil á mariaboel@sjonlag.is 
Tilboðið er þannig að í staðin fyrir að borga 310 þús fyrir aðgerðina (á báðum) þá munduð þið borga 285 þús. BHM greiðir svo 100 þús tilbaka.

Bestu kveðjur,
Maja

(Munið svo að panta hjá mér og Ólafi Má :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 14:31:54 / NurseSteinunn

Gönguferð í sumar!!!

Hæ hæ og takk fyrir síðast, verðum endilega að hafa reglulega reunion :)

Ég var að spá hvort það væru einhverjir sem hefðu áhuga á að fara í gönguferð í sumar.  Mér datt í hug að það væri hægt að fara í c.a. fjögurra daga ferð í kringum einhverja helgi.  Ég held að það gæti verið gaman að fara t.d. Strútsstíg eða á Sveinstind-Skælinga. Þekki þessar leiðir þó ekkert sérstaklega en ég veit t.d. að Útivist er með trússferðir í boði. Hver og einn gæti boðið vinum og ættingjum með í ferðina og ef við náum góðum hóp þá gætum við athugað með hóptilboð.

Kveðja Steinunn:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 13:40:28 / NurseHildurRakel

Hittingur lau 29 mars

Jæja þá styttist í hitting.
Ákveðið er að við hittumst lau 29 mars.
Það ætla ca 20 manns mæta.
Lítur út fyrir að getum alveg verið í heimahúsi, þar sem við erum ekki fleiri.
Er einhver til í að hýsa hópinn, þarf ekki að sjá um veitingarnar.
Hlakka til að sjá ykkur.
Kv Hildur Rakel :d

» 8 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 11:06:26 / NurseHildurRakel

Hittingur

Sæl og blessuð kæru hollsystkini og gleðilegt nýtt ár :D

Allt gott að frétta af okkur vinkonunum hér á BMT. Endurnærðar og sælar eftir frábæra Thailandsferð um jólin.

Enn hvað segið þið, finnst ykkur ekki komin tími á hitting.

Erum búnar að vera að hitta nokkra bekkjarfélaga á göngum spítalans og í kringlum landsins og allir sem við höfum hitt líst voða vel á reunion.

Stefnum á hitting helgina 28-30 mars, páskarnir búnir og þeir sem ég veit að eru að fara erlendis eða eru úti í löndum verða komnir heim.

? hvort ykkur líst betur á föstudags eða laugardagskvöld.

Komið með uppástungur hvernig þið viljið hafa kvöldið. Hvort við eigum að panta sal, hittast á einhverju veitingahúsi og panta mat eða hvort einhver vilji bjóða hópnum heim.

Vonumst til að heyra frá ykkur sem fyrst.

Kær kveðja af BMT Hildur Rakel og Anna Birna :)

 


» 26 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 16:15:24 / NurseÓli

Kæru bekkjarfélagar.....

gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu... maður er nú farinn að sakna ykkar svolítið.... sjáumst vonandi hress á þessu nýja ári og vonandi getum við farið að plana hitting fljótlega

 

kv. Óli


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 10:30:16 / NurseÁsdís

helló melló..

Jæja ég var að sjá að það var skorað á mig að segja frá ævintýrum sumarsins.. jæja hér kemur það: Júni: vaggaði eins og mörgæs í góðaveðrinu...í lok júni kom svo Styrmir Bergur Ólafsson made in Hawaii í heiminn... Júli: fengum húsið okkar í háagerðinu afhent og rifum allt út... Ágúst: varð 27 ára..jeminn...desperate housewifes... September: heima að hugsa um litla sólargeislann minn...:) ekkert smá sátt við að vera laus af spítalanum.. Við sem sagt komumst til Ástralíu þar sem við vorum stödd í miðri eyðimörkinni en þar tókst Óla að slasa sig og við þurftum að leita til The royal flying doctor service..ein lítil stöð sem þjónustar svæði sem nemur 4 sinnum Ísland..þar fékk mín óléttupróf sem var jákvætt...en var síðan staðfest með ómskoðun í Alice springs þar sem mín var á slysó vegna ofþornunar:) en nú kallar engilinn..vona að allir mæti 11. okt hvar sem þetta verður haldið..

» 12 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 16:05:13 / NurseÓli

Nú er ég alveg....

að gefast upp á þessu helvíti.........

Af hverju er maður að láta bjóða sér upp á svona skít og kanil? Ætli maður sé með einhverja sjálfspíningarhvöt? Ætli maður hafi gaman að því að hitta ekki fjölskylduna sína svo dögum skipti, vaka á næturnar, sofa á daginn, vinna um helgar, nóttunni og hátíðardögum á meðan maður veit að fólk á Subway fær hærri laun en ég. Ekki að mér finnist Subway starfsfólk ekki eigi allt það skilið sem það fær.

Ætli yfirmenn á landspítalanum séu hreinlega veruleikafirrtir eða skiptir hreinlega stofnunin þá meira máli en starfsfólkið sem vinnur þarna? Ætli þeir skilji eða fatti ekki þann mannauð sem þau eiga í starfsfólkinu?

Af hverju ætti ég að láta bjóða mér að vera með 226 þúsund í laun fyrir 4 .ára háskólanám? Ef ég ynni bara á daginn fengi ég svona 150 þúsund útborgað.......finnst ykkur það eðlilegt????

Nú er ég að íhuga að fara í framhaldsnámí hjúkrun, er það þess virði? Fyrst ég hef löngun í að fara í meira nám...af hverju þá ekki bara læra eitthvað sem gefur mér betri vinnutíma og hærri laun? Viðskiptafræðingar t.d. eru að massa mikila peninga og tölvunarfræðingar líka. Bæði eru þetta 3 ára háskólanám sem eru 30 einingum styttra en mitt nám.

Ég er orðinn verulega þreytttur á þessu og er alvarlega að huga minn gang...... annars væri ég náttúrulega bara hálfviti....... hugur, hjarta, hálfviti....if you know what i mean!!!!!!

Bloggaði um þetta á minni síðu og ákvað að skella þessu inn hérna líka....

Krakkar hvað finnst ykkur...hvað eruð þið að hugsa nú þegar kjarasamningar eru að vera lausir...endilega kommentið


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 01:28:36 / NurseGuðrúnLísbet

Kveðja frá hinum fimm fræknu

Já hæææææ....

Þetta er fréttaskot frá hinum fimm fræknu í vettfangsferð um landið. Við höfum lagt land undir fót og sitjum nú hér að sumbli í híbýlum Viktoríu fræknu, háttvirts hjúkrunarfræðings og húsfreyju á Blönduósi.

Við höfum heimsótt hinu ýmsu landshluta á síðastliðinni viku og haft gott veður í för með okkur, enda sólskinsbörn mikil. Fararskjóti okkar er RAV-nar nr.4, prýðistryggur foli í eigu Guðbjargar og hans Kára míns og hefur hann reynst okkur prýðilega enda rúmgóður með eindæmum. Híbýli okkar er tjald mikið og grátt, sem fengið hefur heitið "Skúli Steypireyður" og ber hann nafn með rentu, grár og á stærð við meðal-steypireið (fylgir fullkomlega sinni vaxtakúrfu).

Hollsystkini hafa að sjálfsögðu verið sótt heim. Fyrst ber að nefna Kárahnjúka-Önnu-Birnu, sem býr við góðan orðstír austur á hálendinu. Þar sáum aðbúnað hennar og urðum vitni að sérdeilis prýðilegri kunnáttu hennar, enda ekki við öðru að búast af árgangi '06! Og svo fengum við líka hjónabandssælu sem ekki spillti fyrir...

Næst á vegi okkar var ofurhetjan Ingibjörg Helga, aka Helga, sem aldi manninn austur á héraði. Ansi gaman að sjá stelpuna, blómleg og fín enda eigi kona einsömul þessa dagana...

Nú sitjum við hér stelpurnar í angurværum fílingi, enda lokakvöld hringferðarinnar miklu. Ekki komust við hjá því að hugsa til ykkar, kæru bekkjarfélagar. Hvað eruð þið eiginlega að gera í lífinu? Hvað hefur á daga ykkar drifið í sumar?

Við skorum eindregið á Ásdísi, Eygló og Steinunni að greina frá ævintýrum sumarsins, og láta svo boltann rúlla!

 

Kveðja Úlfhildur, Guðbjörg Hulda, Viktoría, Sigurveig S og Guðrún Lísbet.


» 15 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 12:02:18 / NurseGuðbjörgHulda

Partý á langa

Heil og sæl kæru bekkjarsystkin!

Af mér er allt ljómandi gott að frétta. Krabbinn stendur fyrir sínu og sumarfríið í augnsýn. Hugsið ykkur bara SUMARFRÍ Í NÁND!!!!!

Þrátt fyrir ofangreint gleðiefni er það samt ekki tilefni þessarar færslu, heldur sú staðreynd að brátt ljóma páskar og því ekki úr vegi að tjútta svolítið og ná af sér súkkulaðiskvapinu. Af gamalli reynslu veit ég að fáir eru betur til þess fallnir að skemmta sér (og mér) og mín mætu holsystkin og því bíð ég ykkur hér með að heimili mínu á stúdentagörðum,Föstudaginn langa, uppúr kl. 21.00.

Legg ég til (og mæli um) að hver komi með sitt bús en ég skal henda til nokkrum flögum af kartöflum og jafnvel smá salsa.

Endilega komið nú með hispurslausar umræður um málefnið.

Sæl að sinni,

Guðbjörg Hulda

 

 


» 28 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 04:34:47 / NurseÓli

Hvað finnst ykkur....

um að fara að hafa hitting....... var ekki planið að hafa árshátíð einu sinni á ári.......einhverjar hugmyndir????

 

kv. Óli á næturvaktinni

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 21:42:19 / NurseHrafnhildur

Hátíðarkveðja

Mig langaði til að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég vona að þið hafi haft það gott yfir hátíðarnar og étið á ykkur gat!

Kveðja, Hadda

ps- reynum kannski að peppa upp á síðunni öðruhverju með smáfréttir af okkur...???


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 18:42:34 / NurseGuðrúnLísbet

Sérstaklega beint til tælandsfara (þótt þið hin séuð nú ágæt líka)

halló, halló tékkar enginn hér á hi-póstinum sínum lengur?  já maður spyr sig...


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 21:14:56 / NurseGuðbjörg

Takk, takk...

....Elsku Hildur fyrir frábært boð...Maturinn, félagsskapurinn, húsnæðið...Þetta var sannkölluð snilld:!:

Þið hin...takk fyrir þessa ánægjulegu kvöldstund;) og þið sem komust ekki...Ykkar var sárt saknað;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 23:58:07 / NurseHildurRakel

HITTINGUR

Sæl kæru hollsystkini

Nú er komið að því að hittast. Ákveðið hefur verið að hittast þann 30 sept 2006. Endilega reynum að mæta sem flest og láta þá sem fylgjast ekki með á síðunni vita af þessum viðburði. Ekki er búið að ákveða stað, finnum út úr því þegar við vitum ca fjöldan sem ætlar að mæta, ef þið hafið einhverjar hugmynir með stað/sal látið þá í ykkur heyra.

Nú eru tvær vikur til stefnu og góður tími til að skipta vöktum fyrir þá sem eru að vinna.

Látum sjá okkur sem flest, kommentið endilega ef þið ætlið að mæta.

Kveðja, Hildur :P

 

 




» 28 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16